Magnea Sverrisdóttir djákni er nýr fulltrúi þjóðkirkjunnar í stjórn LH. Í stjórninni, sem var kosin á þinginu í Stuttgart í dag, sitja 49 fulltrúar frá öllum heimsálfum. Nýja stjórnin situr fram að næsta heimþingi LH og er æðsta yfirvald LH á milli heimsþinganna.
Magnea býr í Breiðholtinu og starfar sem djákni í Hallgrímskirkju og á fræðslusviði Biskupsstofu. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands og Kennaraháskólanum í Holbæk í Danmörku árið 1996 og 30 eininga djáknanámi frá Guðfræðideild Háskóla Íslands árið 2003.
Magnea hefur verið virk í æskulýðs- og fræðslustörfum innan Reykjavíkurprófastsdæmanna og á landsvísu auk þess að stýra barna- og æskulýðsstarfi Hallgrímssafnaðar.
Magnea tekur við stjórnarsetu af sr. Kristínu Þórunni Tómasdóttur héraðspresti í Kjalarnessprófastsdæmi sem var kosin á heimsþinginu í Winnipeg árið 2003.
Lútherska heimsambandið er samtök 145 kirkna í 79 löndum, með alls rúmlega 70 milljónir meðlima. Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing LH og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“.
Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur og Magnea Sverrisdóttir djákna. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði LH meðan á þinginu stendur.
