Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Kirkjan er samfélag jafnréttis og öryggis

Helmingur þátttakenda á heimsþinginu í Stuttgart eru konur. Í þeirra hópi eru biskupar, prestar, djáknar og óvígðir leiðtogar frá öllum heimshornum. Þessi myndarlegi hópur safnaðist saman við upphaf þinghaldsins í morgun og gekk syngjandi inn í salinn, þar sem fram fór kynning og umræða um þau málefni sem kvennafundur LH leggur fyrir þingið.

Þessi mál varða:

  • Jafnrétti kynjanna í kirkjunni
  • Vitundarátak gegn mansali
  • Fæðuöryggi alls staðar í heiminum

Konurnar kalla kirkjurnar í LH til vitundar um mikilvægi þess að vinna að því í díakoníu og trúboði að raddir og reynsla kvenna móti líf og starf kirkjunnar. Þær hvetja LH til að vinna markvisst að því að efla hlut kvenna í leiðtogastöðum í sambandinu og kirkjum þess og hlúa að sameiginlegum vettvangi lútherskra kvenna um allan heim. 

Kirkjurnar eru ennfremur hvattar til að vekja athygli á misnotkun og ofbeldi sem felst í mansali í ólíkum myndum þess. Konurnar í LH vilja sjá samtök í samfélagi og kirkjum taka höndum saman í að berjast gegn mansali og bregðast við afleiðingum þess í löndunum okkar.

Hungur og skortur á fæðuöryggi er viðvarandi vandamál á mörgum stöðum í heiminum. Konurnar í LH brýna fyrir kirkjunum að vinna að því að minnka bilið á milli þeirra sem hafa of mikið og þeirra sem líða skort. Þetta verði gert með baráttu fyrir hugarfarsbreytingu og forgangsröðun, í samstarfi við viðeigandi aðila í samfélaginu.

Lútherska heimsambandið er samtök 145 kirkna í 79 löndum, með alls rúmlega 70 milljónir meðlima.  Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing Lh og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“. 

Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir