Á fyrsta kvöldi heimsþingsins í Stuttgart var glæsileg dagskrá á vegum heimakirkjunnar sem býður þing Lh velkomið til sín í þetta sinn. Evangelíska þjóðkirkjan í Württemberg kynnti sögu sína og þýsku þjóðarinnar með myndum, fjölbreyttri tónlist og leik.
Marteinn Lúther sjálfur var kynnir kvöldsins og lét nokkrar vel valdar sögur flakka um merki mótmælendakirkjunnar og siðbótarinnar. Þingfulltrúar fengu að sjá mikilvægt hlutverk díakóníu kirkjunnar í uppbyggingu Þýskalands eftir hörmungar þriðja ríkisins og stríðsins og fjölbreyttri starfsemi kirkjunnar heima við og úti í hinum stóra heimi gerð skil.
Tónlistin sem flutt var lifandi var meðal annars í höndum trumbuleikara, kröftugs og glaðbeitts sálmabrassbands og stórs barnakórs sem lýsti upp salinn með gulum skyrtum og breiðum brosum.
Það var áberandi hvað Marteini gamla Lúther og barnahópnum kom vel saman og gefur það góða tilfinningu um að framtíð lúthersku kirkjunnar sé björt og brosandi.
Lútherska kirkjan í heiminum hefur enda fjölbreytta og margbrotna ásýnd og er afar ólík því samfélagi sem kom saman þegar Lútherska heimssambandið var stofnað í Lundi fyrir 63 árum. Vagga lúthersku kirkjunnar er í Þýskalandi og heimakirkjan í Stuttgart gerði vel í kynningu sinni á sameiginlegum rótum þátttakenda heimsþingsins.
Stuttgart er blómstrandi borg sem nýtur velferðar og ríkidæmi, þótt slíkt hafi ekki alltaf verið raunin. Í dag vill borgin taka á móti þeim sem vilja leita betra lífs og leggja sitt af mörkum í uppbyggingu samfélagsins, og sér þess merki í fjölbreyttum og litríkum íbúahópi.
Lútherska heimssambandið eru samtök 140 kirkna út um allan heim. Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing Lh og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“.
Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.