Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Metþáttaka í pílagrímagöngu

David Mouncer les um skírn Jesú fyrir pílagrímana.

Um 60 pílagrímar gengu frá Þingvöllum á Skálholtshátíð í einmuna blíðu dagana 17. – 18. júlí. Þetta er í sjöunda sinn sem slík ganga er skipulögð og hafa aldrei fleiri tekið þátt í henni.

Heiðskírt var og hlýtt í veðri báða dagana og ekki laust við að göngumenn óskuðu sér meiri svala á köflum. Gengið var frá Þingvöllum eftir fararblessun sóknarprestsins þar á laugardagsmorgni og komið heim að Skálholti í hátíðarmessu kl. 14.00 á sunnudegi.

Á göngunni var numið staðar reglulega fyrir næringu og helgihald eða fræðslu – og teygt á þreyttum vöðvum undir leiðsögn jógakennara. Göngustjórar voru sr. Elínborg Sturludóttir, Anna Ingólfsdóttir jógakennari og Björn Erlingsson. Í hópnum voru allmargir sem gengið hafa oft og nokkrir sem farið hafa með á hverju ári frá upphafi.

 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir