Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Munib Younan er nýr forseti LH

Munib Younan sem er biskup Lúthersku kirkjunnar í Jórdaníu og Landinu helga var kosinn forseti LH á þinginu í Stuttgart í morgun. Munib biskup er þekktur sem einlægur baráttumaður fyrir friði og samtali trúarbragðanna í löndunum við botn Miðjarðarhafs.

Munib Younan las guðfræði í Palestínu, Finnlandi og Bandaríkjunum og var vígður til prests árið 1976. Hann hefur þjónað söfnuðum í Ramallah, Jerúsalem og í Beit Jala. Hann hefur verið biskup síðan 1998 í Evangelísk-lúthersku kirkjunnar í Jórdaníu og landinu helga og er þriðji palestínumaðurinn sem leiðir hana. Kirkjan var stofnsett á 19. öld af þýskum kristniboðum og var í byrjun þjónað af þýskum prestum og biskupum. Lútherska kirkjan í landingu helga og Jórdaníu hefur um 3000 meðlimi. 

Munib biskup þýddi Ágsborgarjátninguna á arabísku í fyrsta sinn og er höfundur bókarinnar „Að bera friðnum vitni“ sem fjallar um friðarstarf fyrir botni Miðjarðarhafs. Hann hefur verið virkur í samkirkjulegu starfi og verið forvígismaður í samtali ólíkra trúarbragða í heimalandi sínu. 

Munib er giftur Suad Younan sem er skólastjóri í Helen Keller blindraskólanum í Beit Hanina í útjaðri Jerúsalem. Munib og Suad eiga þrjú börn og eitt barnabarn.

Í stuttri ræðu til þingsins eftir að hafa verið kosinn til forseta LH lagði Munib áherslu á að kirkjan leggur stund á samfylgd með manneskjunni í öllum aðstæðum hennar. Sérstaka köllun hefur kirkjan til að vera rödd hinna raddlausu, tala fyrir réttlæti þar sem ranglæti ríkir og berjast fyrir friði þar sem stríð geisar.

Lútherska heimsambandið er samtök 145 kirkna í 79 löndum, með alls rúmlega 70 milljónir meðlima.  Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing Lh og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“. 

Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir