Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Nýr vefur um íslenskar kirkjur

Kirkjukort.net er nýr íslenskur vefur

Ný íslenskur vefur, kirkjukort.net, hefur verið opnaður. Á vefnum eru upplýsingar um allar kirkjur og bænhús á Íslandi. Vefurinn byggir á Google Maps og geta notendur því auðveldlega séð staðsetningu allra kirkna.

Á síðu hverrar kirkju er mynd af henni, stutt lýsing og annar fróðleikur sem viðkemur kirkjunni. Auðvelt er að skrá sig inn á síðuna. Notendur geta bætt eigin ljósmyndum við kirkjur landsins.

Á auðveldan máta má leita að kirkju eftir nafni, byggingarári, landshluta eða bæjarfélagi.  Þegar kirkjur eru skoðaðar eftir byggingarári er hægt að skoða stök ár, áratug eða tímabil sem notandi getur sjálfur stillt.

Höfundar síðunnar eru tveir bræður sem hafa undanfarin misseri unnið að síðunni.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir