Hin árlega pílagrímaganga frá Þingvöllum til Skálholts verður gengin 17.-18. júlí nk. Gangan hefst í Þingvallakirkju kl. 10 árdegis laugardaginn 17. júlí.
Síðustu fimm ár hefur verið gengin pílagrímaganga frá Þingvöllum að Skálholti á Skálholtshátíð sem haldin er sem næst Þorláksmessu að sumri 20. júlí. Gangan verður endurtekin í ár og hefst kl. 10 árdegis laugardaginn 17. júlí í Þingvallakirkju. Sr. Kristján Valur Ingólfsson flytur fararblesun. Dagskrá laugardagsins endar með stuttum kvöldsöng við Vígðulaug á Laugarvatni. Gist verður í svefnpokagistingu í Farfuglaheimilinu á Laugarvatni (Laugarvatn Hostel, Farfuglaheimilið, 840 Laugarvatn) gegn vægu gjaldi. Á Laugarvatni er einnig hægt að kaupa kvöldmat og morgunmat. Farangur hefur verið fluttur fyrir fólk frá Þingvöllum að Laugarvatni.
Göngunni er fram haldið á sunnudagsmorgni frá Neðra-Apavatni kl. 9.00 og er gengið sem leið liggur að Skálholti til hátíðarguðsþjónustu í Skálholtsdómkirkju kl. 14.00. Hægt hefur verið að koma inn í gönguna á ýmsum stöðum og ganga aðeins hluta hennar en vera fullgildur pílagrímur á Skálholtshátíð.
Göngustjórar verða sr. Elínborg Sturludóttir, Anna Ingólfsdóttir jógakennari og Björn Erlingsson. Sérstakur undirbúnings- og kynningarfundur verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu föstudaginn 16. júlí kl. 16.30. Allir hjartanlega velkomnir. Skráning er á vefsíðunni www.skalholt.is/pilagrimagongur. Einnig er hægt að skrá sig í síma 486 8870. Skráningargjald er 1500.- kr.
