Martin Junge, sem verður næsti framkvæmdastjóri LH, ávarpaði heimsþingið í Stuttgart í gær. Hann talaði um bakgrunn sinn, hlutverk trúarinnar í heiminum og áherslur í starfi LH næstu árin.
Heildræn sýn á köllun kirkjunnar
Martin Junge er fæddur og uppalinn í Chile á tímum herstjórnarinnar í landinu. Reynslan af því hvernig þjóðin hans var svipt frelsi og lýðræði á þessum tíma mótaði hann sem manneskju og guðfræðing. „Réttlæti, mannvirðing, friðsamleg barátta og umburðarlyndi eru þau mikilvægu gildi sem ég tók með mér frá þessum tíma“, sagði Martin í erindi sínu, „gildi sem voru fótum troðin í félagslegu og pólitísku samhengi í landinu.“
“Kirkjan var staður þar sem þessi gildi voru lifandi og þaðan óx von sem styrkti skapandi andstöðu við niðurrifsöfl og hvatningu til að snúa sér að náunganum sem lifði við ofsóknir, hungur, sjúkdóma og rányrkju á eigin réttindum.“
Þessi reynsla skilaði sér í heildrænni sýn á köllun kirkjunnar í heiminum, sagði Martin, sem er starfaði sem prestur í heimalandi sínu. “Boðun, díakonía – og spámannleg nærvera í samfélaginu – sem er málsvarahlutverk kirkjunnar – heyrir allt saman og getur ekki verið án hvers annars.”
Til að útskýra hvað þetta þýðir í samhengi kirkjunnar, hvatti hann heimsþingið til að íhuga hvaða skilaboð það sendir að annars vegar berjast fyrir réttindum og velferð fólks og hins vegar boða það úr prédikunarstólnum að manneskjan sé ekkert meira en brotinn syndari sem á harða refsingu skilið.
“Hvernig lítur það út ef við gefum með okkur í hjálparstarfi en byggjum veggi í kringum altarið þannig að aðeins fáir útvaldir eru velkomnir þangað? Hvernig lítur það út ef við boðum fagnaðarerindi Jesú Krists sem varð einn af okkur fyrir samstöðu og kærleika Guðs, ef þetta fagnaðarerindið knýr okkur ekki áfram til að sýna öðrum samstöðu og kærleika?”
“Samkvæmni og jafnvægi verða að ríkja í boðun kirkjunnar að þessu leyti. Að því ætlar LH að vinna að á næstu árum”, sagði Martin Junge.
Hvað vísar leiðina í starfi LH
Martin sagði frá þremur vörðum sem hann vill að leiðbeini LH í framtíðinni. Fyrsta varðan er valddreifing og af-miðstýring. LH er alþjóðlegt samfélag þar sem hver og ein kirkja gefur af sér og þiggur í samfélagi við aðrar kirkjur.
Önnur varðan er það sem sameinar og gildir alls staðar. Þótt okkar eigið samhengi sé mikilvægt í sjálfsskilningi okkar og samskiptum verðum við að nálgast hvert annað út frá því að við þörfnumst öll daglegs brauðs og erum náungar hvers annars, kristið fólk og þau sem tilheyra öðrum trúarbrögðum.
Þriðja varðan minnir okkur á að við viljum vera veitult samfélag. LH vill halda áfram að veita röddum og reynslu beggja kynja og fólks á öllum aldrei aðgengi að ákvarðanatöku og leiðtogastöðum. Þar sé margt óunnið. Kvótakerfi tryggir nærveru en ekki endilega þátttöku. “Kirkjurnar þurfa að að vera veitulli og örlátari þegar kemur að þátttöku ólíkra hópa – og það er ekki síst hlutverk okkar karlanna að leggja þar hönd á plóg”, sagði Martin Junge.
Náðin finnur leið að náunganum
Náðin hefur tvær víddir, hina lóðréttu og þá láréttu. Lóðrétta víddin er sú að náðin er gjöf frá Guði og lárétta víddin snýr að því hvernig við þjónum náunga okkar. Náðin og hvernig hún opinberast í Jesú Kristi, er kjarnaatriði í lútherskri trú. “Umhyggja Guðs til heimsins birtist í Kristi og því erum við einnig kölluð til að lifa í heiminum og elska náunga okkar” sagði næsti framkvæmdastjóri LH, Martin Junge frá Chile.
Lútherska heimsambandið er samtök 145 kirkna í 79 löndum, með alls rúmlega 70 milljónir meðlima. Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing Lh og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“.
Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.