Á lokadegi lútherska heimsþingsins í Stuttgart var gengið frá skilaboðum þingsins til aðildarkirknanna. Skjalið inniheldur sýn, hvatningu og skuldbindingu til að vinna að málum sem eru knýjandi í lífi kirkjunnar og samfélagsins.
Þemað „Gef oss í dag vort daglegt brauð“ var á þinginu íhugað í samhengi þess hvernig kirkjan lifir og starfar í heiminum. Daglegt brauð og aðgengi að því á ólíkum stöðum í heiminum var umfjöllunarefni í helgihaldi, biblíulestrum og umræðum, sem og hvað það er sem hindrar fólk í að þiggja sitt daglega brauð.
Meðal þeirra efna sem komu fyrir í ólíku samhengi og þingið vill sérstaklega nefna sem hindranir í að allir fái sitt daglega brauð eru ójafn dreifing matar í heiminum, óréttmætar skuldir, mansal, hnattræn hlýnun og jafnrétti kynjanna.
LH vill senda þau skilaboð til kirknanna að brýnt sé að vera spámannleg nærvera og málsvari þessara málaflokka í ólíku samhengi okkar.
Þinginu lýkur formlega með guðsþjónustu í Stiftskirche í eftirmiðdaginn og þátttakendur halda til síns heima að því loknu. Næstu tvo daga heldur nýkjörið ráð LH fyrsta fund sinn, en þar er Magnea Sverrisdóttir djákni, fulltrúi þjóðkirkjunnar.
Lútherska heimsambandið er samtök 145 kirkna í 79 löndum, með alls rúmlega 70 milljónir meðlima. Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing Lh og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“.
Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.