Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Sumartónleikar í Skálholtskirkju hefjast um helgina

Skálholtsdómkirkja - Kristur og ljósgeislarnir - mynd: Árni Svanur Daníelsson

Sumartónleikar í Skálholtskirkju hefjast 3. júlí. Í ár er 35 ára afmæli hátíðarinnar, en fyrstu tónleikarnir voru haldnir 12. júlí 1975. Sunnudaginn fjórða júlí verða hátíðartónleikar þar sem fluttur verður Maríuvesper eftir Claudio Monteverdi.

Fjölmargir tónleikar verða að vanda yfir sex vikna tímabil í sumar og flytjendur verða alls um 200. Fimm kammerkórar frá fjórum löndum og fjölmargir hljóðfæraleikarar og einsöngvarar víðs vegar að koma einnig fram.

Fyrstu helgina kemur barokkhópurinn Instrumenta Musica frá Dresden og flytja ásamt Jóhönnu Halldórsdóttur dagskrá sem nefnist Du grosser König. Á efnisskránni eru ítölsk og þýsk kirkjutónverk frá upphafi 17. aldar. Fyrir tónleikana, sem hefjast á laugardeginum 3. júlí kl. 15, mun leiðari þýska hópsins, Ercole Nisini barokkbásúnuleikari, fjalla um tónlist og hljóðfæranotkun í lok endurreisnar og upphafi barokks. Erindið hefst í Skálholtsskóla kl. 14:00.

Kl. 17. sama dag flytur Eyjólfur Eyjólfsson tenór ásamt 5 hljóðfæraleikurum dagskrá byggða á safni Monteverdis frá 1632 og nefnist Scherzi Musicali. Inn á milli söngvanna eru leiknar canzonur eftir G. Frescobaldi.

Afmælishátíðartónleikar

Stærsti viðburður sumarsins verða á sunnudeginum 4. júlí kl. 15. Það verða sannkallaðir hátíðartónleikar þar sem um 70 manna hópur flytur Maríuvesper eftir Claudio Monteverdi. Verkið er 400 ára í ár. Það markar tímamót í tónlistarsögunni þar sem er teflt saman kór, einsöngvurum og hljómsveit, form sem síðar þróaðist í átt til stóru kirkjuverka hábarokktímans. Viðburðurinn er alþjóðlegt samstarfsverkefni Sumartónleika, kammerkórsins Collegium cantorum frá Uppsaladómkirkju, barokkhópsins Instrumenta musica frá Dresden og Stúlknakórs Reykjavíkur Vox Junior. Auk þess taka þátt innlendir barokkhljóðfæraleikarar. Meðal einsöngvara verða Marta G. Halldórsdóttir, Rannveig Sif Sigurðardóttir og Eyjólfur Eyjófsson. Stjórnandi verður Olle Johansson dómorganisti í Uppsala, Svíþjóð.

Meðal annara viðburða  í sumar verður ný messa, Missa Pacis, fyrir blandaðan kór, selló, slagverk og orgel eftir Sigurð Sævarsson í flutningi sönghópsins Hljómeykis. Sérstök minningartónleikaröð verður um Helgu Ingólfsdóttur semballeikara og stofnanda Sumartónleika sem lést í fyrra. Þar verður Bachsveitin í Skálholti, auk Hedwig Bilgram, fyrrverandi kennara Helgu, og Mörtu G. Halldórsdóttur. Skálholtsmessa Hróðmars I Sigurbjörnssonar verður flutt í tilefni af því að 10 ár eru liðin frá frumflutningi verksins. Þá verða tónleikar með ítalska kammerkórnum Libera Pisani Cantorum og ný verk verða frumflutt eftir Ólaf Arnalds, Önnu S. Þorvaldsdóttur, Óliver Kentish, Atla Heimi Sveinsson o. fl. Skálholtskvartettinn og Bruno Cocset flytja verk Schuberts og enska snemmbarokktónlist, Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir og fransk-íslenska barokktríóið Süsser Trost kemur fram o. fl.o. fl.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir