Enn heitara var en ella í opnunarguðsþjónustu heimsþingsins í Stuttgart þar sem ofan á sumarhitann bættust fjölmargir ljóskastarar sem lýstu upp kirkjuskipið fyrir sjónvarpsútsendingu. Þátttakendurnir voru komnir í troðfulla kirkjuna tímanlega þar sem renna þurfti yfir sálma og æfa helstu atriði í guðsþjónustunni sem fór fram á fjórum tungumálum, þýsku, ensku, frönsku og spænsku.
Í lestrum og bænum var út af sögunni um Rut og Naomi, út frá játningu Rutar “þitt fólk er mitt fólk” í samhengi fæðu og öryggis á ólíkum stöðum í heiminum. Ábyrgð okkar á að deila gjöfum jarðarinnar og köllun kirkjunnar til að uppræta hungur var ennfremur tjáð á sterkan hátt í litúrgíunni.
Í prédikuninni lagði Mark Hanson biskup, forseti Lh, út af guðspjallinu um brauðundrið. Rétt eins og Jesús kallaði eftir samhjálp og samstöðu sem leiðir til mettunar er kirkjan kölluð til að skapa samfélag sem sér fyrir þörfum manneskjunnar, hvar sem er í heiminum. Það gerir hún með mission, díakóníu og samstarfi.
Í opnunarguðsþjónustunni var frumflutt sálmur heimsþingsins, Gef oss í dag vort daglegt brauð, eftir Per Harling.
Ásamt fulltrúum og starfsfólki á þinginu eru þar einnig ekúmenískir fulltrúar frá öðrum kirkjudeildum, og tóku þeir þátt í guðsþjónustunni. Í kvöld hefst svo þingið sjálft og hefur starf sitt með formlegum hætti.
Lútherska heimssambandið eru samtök 140 kirkna út um allan heim. Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing Lh og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“.
Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.