Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Unga kirkjan – Hólahátíð tileinkuð unga fólkinu

Hóladómkirkja - mynd: Árni Svanur Daníelsson

Hólahátíð verður haldin 13. – 15. ágúst næstkomandi. Að þessu sinni verður hún sérstaklega tileinkuð unga fólkinu. Yfirskrift dagskrár fyrir unga fólkið sem mætir á Hólahátíð er „Unga kirkjan“ .

Margt verður til gamans gert, kvöldvökur, leikir, hreyfing og letistundir, allt á sínum stað! Vonast er eftir þátttöku fermingarbarnahópa sem og frá æskulýðsfélögum úr kirkjum víðsvegar af landinu.

Með þessu framtaki vilja Æskulýðssamband kirkjunnar í Eyjafjarðarprófastsdæmi, Æskulýðssamband Þjóðkirkjunnar og vígslubiskupinn á Hólum gera unga fólkið og málefni þess sýnilegri í samhengi þeirra hátíða sem kirkjan heldur árlega og serílagi á Hólastað.

Dagskráin hefst föstudaginn 13. ágúst með málþingi í Auðunnarstofu um hlutverk ungs fólks í kirkjunni í dag kl. 20:30. Á laugardeginum er boðið upp á Pílagrímagöngur, víðavangshlaup, ratleik (sem hentar allri fjölskyldunni), helgihald, grillveislu, fáránleika, kvöldvöku við varðeld og fleira. Dagskráin á sunnudeginum er einnig fjölbreytt og er þungamiðja hennar hátíðarmessan sjálf klukkan tvö síðdegis.

Umsjón með dagskrá unga fólksins hefur Pétur Björgvin djákni í Glerárkirkju og gefur hann nánari upplýsingar í síma 864 8451 eða í gegnum netfangið petur(hjá)glerarkirkja.is.

Hér á netinu má nálgast kynningarbækling fyrir þau sem hafa hug á að koma með ungmennahópa á Hólahátíð. Þar er að finna ítarlegar upplýsingar um dagskrá, ferðir, gistingu, kostnað og fleira.

 

Fylgiskjöl Stærð
Unga kirkjan 238.55 KB

Deila fréttinni


Nýjar fréttir