Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Afsökunarbeiðni

Undanfarið hafa mál þjóðkirkjunnar verið rædd af miklum tilfinningahita sem eðlilegt er vegna þess sem kom fram í máli Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur um föður sinn eftir kirkjuráðsfund með henni 17. ágúst s.l.

Í framhaldi hefur verið fjallað á ný um þau mál sem komu upp fyrir 15 árum og voru þá leidd til lykta af kirkjunni eftir þeim leiðum sem þá voru færar.

Ólafur Skúlason biskup var þvingaður til að segja af sér vegna umfjöllunar á kirkjulegum vettvangi og var tilkynnt um það á prestastefnu í Digraneskirkju 25. júní 1996.

Í umfjöllun um ný þjóðkirkjulög frá 1995 til 1997, nr 78/ 1997 var komið inn sérstöku ákvæði í lögin sem tóku gildi  1. janúar 1998 til að taka á málum sem komu upp gagnvart Ólafi Skúlasyni og sambærilegum málum með ákvæði um Úrskurðar og Áfrýjunarnefnd, en í 12. gr. laganna segir: “Nú rís ágreiningur á kirkjulegum vettvangi eða starfsmaður þjóðkirkjunnar er borinn sökum um siðferðis- eða agabrot og getur þá hver sem hagsmuna á að gæta borið málið undir úrskurðarnefnd ..” Samsvarandi ákvæði er ekki að finna hjá neinni kirkjudeild í heiminum.

Í framhaldi af þjóðkirkjulögunum voru þegar settar starfsreglur um meðferð kynferðisbrota innan íslensku Þjóðkirkjunnar nr. 739/1998 og stofnun fagráðs til stuðnings þeim sem brotið hefur verið gegn, en slíkt fagráð þekkist ekki innan annarra kirkjudeilda. Var þetta gert í beinu framhaldi af málum kvenna gegn Ólafi Skúlasyni.

Það var allt gert sem mögulegt var til að tryggja úrræði, sem kirkjan gæti átt gegn kynferðisbrotum innan íslensku þjóðkirkjunnar 1997 og 1998.

Frásögn Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur á Kirkjuráðsfundi 17. ágúst s.l. sem ég trúi að sé sönn gagnvart hræðilegri reynslu hennar, kallar á afsökunarbeiðni gagnvart því, hvernig það gat gerst að Ólafur Skúlason var kjörinn biskup.

Sem einn af forystumönnum kirkjunnar, bið ég þær konur sem þjást vegna þessa, að fyrirgefa íslensku kirkjunni. Ég bið þjóð mína afsökunar og bið einnig að kirkjunni sé gefið tækifæri til að takast á við daginn í dag og dagana sem framundan eru, til að vinna til trausts á ný, þannig að ekki verði aðskilnaður milli þjóðar og kirkju.

Ég bið drottinn Guð um að styrkja Guðrúnu Ebbu og fjölskyldu hennar og einnig fjölskyldu Ólafs Skúlasonar til að takast á við þessa mestu þjáningu, sem orðið getur í mannlegum samskiptum.

 Halldór Gunnarsson.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir