Í dag fór fram aukakirkjuþing í Grensáskirkju. Til þingsins var kallað til að fjalla um afstöðu kirkjuþings til kröfu ríkisvaldsins um 9% niðurskurð fjárframlaga til þjóðkirkjunnar á árinu 2011 vegna aðstæðna í efnahagsmálum landsins.
Tvær ályktanir voru samþykktar:
1. Þingsályktun um viðbrögð kirkjuþings við niðurskurðarkröfu ríkisins fyrir árið 2011
Aukakirkjuþing 2010 ályktar að fela kirkjuráði ásamt þriggja manna nefnd sem kjörin er af kirkjuþingi að ganga til samninga við ríkisvaldið um niðurskurðarkröfu ríkisins fyrir árið 2011 með eftirfarandi samningsmarkmið:
Þjóðkirkjan er sjálfstæður lögaðili og grundvelli fjárhagslegra samskipta ríkis og kirkju verður ekki raskað nema með gagnkvæmum samningum sem bæði kirkjuþing og alþingi samþykkja. Samningsbundið og lögfest endurgjald ríkisins til þjóðkirkjunnar samkvæmt samkomulagi um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997 og samningi um rekstrarkostnað vegna prestsembætta og prófasta, rekstrarkostnað biskupsstofu, framlag til kristnisjóðs og sérframlög til þjóðkirkjunnar, dags. 4. september 1998, skerðist ekki meira en um 5% árið 2011 miðað við greiðslur úr ríkissjóði árið 2010.
Samþykki þjóðkirkjunnar á ofangreindri 5% skerðingu verði háð því að fjárhæð sóknargjalda árið 2011 breytist ekki frá árinu 2010 og verði 767 krónur á mánuði á hvern gjaldanda 16 ára og eldri, enda eru þau félagsgjöld í eðli sínu sem standa undir grunnþjónustu safnaðanna sem er mikilvægur þáttur í velferð samfélagsins.
Samkomulag um niðurskurð fjárframlaga til þjóðkirkjunnar skal gert með fyrirvara um samþykki kirkjuþings og Alþingis og gildi einungis fyrir árið 2011.
2. Þingsályktun um að fela kirkjuráði að vinna að niðurskurði á fjárlagalið biskups Íslands
Aukakirkjuþing 2010 felur kirkjuráði að halda áfram vinnu við aðgerðaáætlun vegna niðurskurðarkröfu ríkisins á fjárlagalið Biskups Íslands 2011, þar sem tekið verið mið af umræðum á þinginu. Þriggja manna nefnd sem kjörin var af aukakirkjuþingi 2010 vinni með kirkjuráði að útfærslu áætlunarinnar í samræmi við niðurstöðu samninga við ríkisvaldið. Sparnaðaráætlunin komi í heild til umfjöllunar á kirkjuþingi í haust. Meðal þeirra atriða sem verða til skoðunar eru:
1. Endurskipulag prestsþjónustunnar og stofnana þjóðkirkjunnar.
2. Starfshlutfall starfsmanna Biskupsstofu og stofnana kirkjunnar lækki og/eða starfsfólki fækki.
3. Námsleyfi verði 10 mánuðir árið 2011 í stað 36 mánaða árið 2009.
4. Fækkun prófastsdæma
5. Almennur 10% sparnaður í rekstri embættis biskups Íslands.
6. Sala fasteigna.
7. Framlag Jöfnunarsjóðs sókna og kirkjumálasjóðs til prestsþjónustu, rekstrar og stofnkostnaðar.
8. Tímabundin lántaka.
9. Tekjuöflun með þjónustusamningum.
10. Efling sjálfboðastarfs í þjóðkirkjunni.
Í þriggja manna nefnd til að vinna með kirkjuráði voru kjörnir kirkjuþingsfulltrúarnir Ásbjörn Jónsson, sr. Gunnlaugur Stefánsson og Katrín Ásgrímsdóttir.
