Í dag er haldið aukakirkjuþing í Grensáskirkju. Eitt mál liggur fyrir þinginu: Umræða um viðbrögð kirkjunnar við kröfu ríkisvaldsins um niðurskurð fjárframlaga til þjóðkirkjunnar á árinu 2011 vegna aðstæðna í efnahagsmálum landsins.
Á kirkjuþingi sitja 29 kjörnir fulltrúar, 17 leikmenn og 12 vígðir þjónar, auk biskupa, fulltrúa guðfræði- og trúarbragðafræðideildar Háskóla Íslands og fulltrúa dómsmála- og mannréttindaráðherra. Kosið var til kirkjuþings í maí sl. og er þetta í fyrsta skipti sem nýja þingið kemur saman.
