Lagadeild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir hádegisfundi um trúnaðar- og þagnarskyldu presta og tilkynningarskyldu fagstétta, þ.m.t. presta, samkvæmt barnaverndarlögum.
Fundurinn verður haldinn mánudaginn 30. ágúst kl. 11:45-13:00 í stofu V.1.01 (Antares) í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1. Fundurinn er haldinn í tilefni af þeirri umræðu sem hefur átt sér stað að undanförnu.
Stefán Einar Stefánsson, guðfræðingur og viðskiptasiðfræðingur og dr. Sigríður Guðmarsdóttir sóknarprestur, flytja erindi. Fundarstjóri er Svala Ólafsdóttir sérfræðingur við lagadeild HR. Að fundinum loknum verða almennar umræður. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.