Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Hvatning til samstöðu um úrbætur

Í bréfi til starfsfólks kirkjunnar laugardaginn 28. ágúst nefndi Karl Sigurbjörnsson fimm atriði til að kirkjan geti brugðist betur við kynbundnu ofbeldi.

Þessi atriði eru:

  • Óháð rannsóknarnefnd sem kirkjuþing skipar. Forsætisnefnd þingsins hefur þegar hafið undirbúning þess. Rannsóknarnefndin tekur til starfa strax að loknu kirkjuþingi og skilar skýrslu svo fljótt sem auðið er. Niðurstaða verði birt almenningi.
  • Fræðsluáætlun  um kynbundið ofbeldi og hjálp við þolendur þess verður unnin fyrir starfsfólk kirkjunnar og lögð áhersla á vandaða framkvæmd hennar. Samhliða því verði efnt til umræðu um efnið í söfnuðum kirkjunnar.
  • Gengið verði úr skugga um það með skimun að starfsfólk kirkjunnar hafi ekki brotið af sér í þessum efnum.
  • Úrræði kirkjunnar til þess að taka á kyndbundnu ofbeldi og meintum kynferðisbrotum verða tekin til endurskoðunar í ljósi reynslunnar. Skerpt verður á löggjöf og starfsreglum um úrskurðarnefnd til að efla hana sem tæki til þess að takast á við álitamál sem upp kunna að koma.
  • Efla frekar handleiðslu og faglegan stuðning við presta, djákna og annað starfsfólk kirkjunnar til þess að fást við mál sem tengjast kynbundnu ofbeldi.

Sumt af þessu er þegar í farvegi, annað í undirbúningi í stofnunum kirkjunnar og brýnt að fylgja því eftir. Biskup sagði í bréfinu að hann leggði allt kapp á það og að miklu skipti að samstaða takist um þessi atriði.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir