Hin árlegu Innandyranámskeið eru að hefjast og verður það fyrsta haldið í Seljakirkju í Reykjavík á morgun, 30. ágúst kl. 17 og í Keflavíkurkirkju og í Holti í Önundarfirði miðvikudaginn 1. september. Námskeiðin verða á 10 stöðum um landið og eru þau ætluð öllum þeim sem koma að barna- og æskulýðsstarfi kirkjunnar, hvort heldur eru vígðir þjónar eða leikmenn, launaðir starfsmenn eða sjálfboðaliðar.
Að þessu sinni sem endranær er fjallað um fræðsluefni vetrarins fyrir sunnudagaskóla, 6-9 ára starf og TTT en einnig verður fjallað fræðsluefni og kynntur verður nýr vefur fyrir fermingarbörn.
Í ljósi umræðu undanfarinna daga um kynferðislega misnotkun innan kirkjunnar verða þau mál í brennidepli. Farið verður í gegnum siðareglur þjóðkirkjunnar, skimun á starfsfólki og úrræði ef atvik koma upp. Fyrst og fremst munum við þó leggja áherslu á þau faglegu vinnubrögð sem kirkjan hefur verið að temja sér í þessum efnum á undanförnum árum enda þótt ávallt sé þörf á að halda vöku sinni.
Því vil ég hvetja ykkur öll til að mæta og hafa með það starfsfólk sem kemur að barna-, fermingar- og æskulýðsstarfinu. Innandyranámskeiðin eru til að auka fagmennsku í starfi okkar og um leið eru þau hugsuð sem hvatning, ekki síst núna á þessum tímum, við að vinna það góða starf sem unnið er í söfnuðum landsins fyrir börn og unglinga.
Dagskrái Innandyranámskeiðanna:
- Helgistund
- Fræðsla: Nýjungar á efnisveitunni, fræðsluefni næsta vetrarins: Sunnudagaskólinn, 6-9 ára starfið og TTT. Lærum söngva.
- Kynningar:
Siðareglur og sakaskrá, jafnréttisstefna kirkjunnar og umhverfisstefna kirkjunnar, fermingarvefur kynntur. - Matarhlé.
- Verklegar æfingar, tilraunir og umræður.
- Kynning á bókinni Stórt og smátt um bænina og nokkrar bænaæfíngar skoðaðar og prófaðar
Gert er ráð fyrir að námskeiði taki um 4 klukkustundir.
