Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, og sr. Geir Waage áttu fund í morgun vegna ummæla sr. Geirs um tilkynningaskyldu samkvæmt barnaverndarlögum. Á fundinum kom fram að sr. Geir muni hér eftir sem hingað til hlýða þeirri tilkynningaskyldu og samsvarandi ákvæðum í siðareglum þjóðkirkjunnar.
Biskup Íslands áréttaði að allir prestar og starfsmenn þjóðkirkjunnar væru skuldbundnir þeim reglum. Enginn vafi á að ríkja í þeim efnum.