Annað þing Ríkíní, félags um forna tónlist verður haldið á Hólum í Hjaltadal helgina 27. til 29. ágúst. Félagið var stofnað fyrir tveimur árum af áhugafólki og fræðimönnum um fornan tónlistararf Íslendinga.
Í íslenskum handritum er allmikið af tónlist og mest af henni hefur ekki verið flutt eða komið fyrir eyru manna öldum saman. Markmið félagsins er að styðja við flutning og rannsóknir á þessum forna arfi. Þing félagsins sem nú er haldið öðru sinni á Hólum er samkoma þar sem áhuga og fræðimenn leiða saman hesta sína og segja frá því markverðasta sem þeir hafa verið að skoða. Jafnframt er flutt tónlist og þingmenn syngja saman messu.
Öllum er frjáls aðgangur að þinginu og ekkert þing-gjald tekið af gestum. Fólk þarf hvorki að vera tónlistar- né fræðimenn til að njóta þess sem boðið er uppá. Ferðaþjónustan á Hólum hefur gert gestum gott tilboð í gistingu og uppihald.
Á þinginu í ár verður sungin messa eftir messuköflum Ærlækjarbókar sem er skinnhandrit frá því um 1500 og Sverrir Tómasson mun fjalla um handritið og heilagan Nikulás. Voches Thules leiða sönginn. Einnig verður Árni Heimir Ingólfsson með erindi um handritsbrot frá 15. öld og Spilmenn Ríkínís kynna veraldlegu lögin í handritinu Melodia og leika á hljóðfæri sín.
Messan verður sungin á sunnudeginum kl.11:00. Eftir hádegi verða síðan tónleikar á vegum félagsins í Hóladómkirkju.
