Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Samkirkjulegt átak gegn kynferðislegu ofbeldi

Kristnar kirkjur á Íslandi mótmæla ofbeldi

Þriðjudaginn 31. ágúst næstkomandi mun samstarfshópur á vegum Þjóðkirkjunnar og annarra kristinna trúfélaga hleypa af stokkunum átaki gegn kynferðislegu ofbeldi. Alls taka 15 trúfélög þátt í átakinu.

Kortum og plakötum verður dreift í allar kirkjur og kristna söfnuði landsins til áréttingar og undirstrikunar á því að kynferðisofbeldi verði aldrei liðið í kristnum söfnuðum.

Á kortunum og plakötunum er fjallað um hvar kynferðislegt ofbeldi getur átt sér stað. Kynferðislegt ofbeldi er skilgreint, algengar tilfinningar þeirra sem lenda í kynferðislegu ofbeldi tilgreindar auk þess sem fólki er bent á ýmsar leiðir sem í boði eru fyrir þá sem hafa lent í slíku ofbeldi.

Kirkjurnar sem taka þátt í þessu átaki eru: Betanía, CTF-Kærleikur, Fríkirkjan í Hafnarfirði, Fríkirkjan í Reykjavík, Hjálpræðisherinn, Hvítasunnusöfnuðirnir á Íslandi, Íslenska kristkirkjan, Kaþólska kirkjan, Kefas, Kirkja sjöunda dags aðventista, Krossinn, Óháði söfnuðurinn, Rússneska rétttrúnaðarkirkjan, Vegurinn og Þjóðkirkjan.
 

Fylgiskjöl Stærð
Plakat 1.32 MB
Póstkort 800.45 KB

Deila fréttinni


Nýjar fréttir