Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Sr. Ágúst Sigurðsson látinn

Séra Ágúst Sigurðsson ásamt ritnefnd bókarinnar Öll þau klukknaköll.

Séra Ágúst Sigurðsson, fyrrverandi sóknarprestur, rithöfundur og fræðimaður, lést að Líknardeild Landspítalans í Kópavogi aðfararnótt sunnudagsins 22. ágúst sl. Ágúst var fæddur á Akureyri 15. mars 1938, sonur hjónanna sr. Sigurðar Stefánssonar, síðar vígslubiskups Hólastiftis, og eiginkonu hans frú Maríu Ágústsdóttur.

 Ágúst varð stúdent frá MA 17. júní 1959 og lauk kandidatsprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 3. júní 1965. Lauk réttindanámi til þjónustu í dönsku kirkjunni 1981. Hann vígðist 20. júní 1965 til þjónustu í Möðruvallaprestakalli, varð sóknarprestur í Vallanesi á Völlum 1966-1970, í Ólafsvík 1970-1972 og á Mælifelli í Skagafirði 1972-1983. Sendiráðsprestur í Kaupmannahöfn var hann 1983-1989 og sóknarprestur á Prestbakka í Hrútafirði 1989 uns hann lét af störfum vegna veikinda árið 2002. Hann sinnti einnig kennslu og fleiri störfum og gegndi fjölda trúnaðarstarfa. Sr. Ágúst var formaður Félags fyrrum þjónandi presta og stjórnaði fundi félagsins í síðasta sinn sunnudaginn 15. ágúst síðastliðinn.

Séra Ágúst sinnti einnig ritstörfum og flutti fjölmarga útvarpsþætti. Meðal bóka eftir hann bókaflokkurinn  Forn frægðarsetur og bókaflokkur um kirkjur á Vestfjörðum var gefinn út árin 2005 -2008. Níunda bók sr. Ágústar, Öll þau klukknaköll, kom út í fyrra, að hálfu byggð á samnefndum útvarpsviðtölum við prestkonur frá vetrinum 2008-2009. Viðtölin voru liður í gagnasöfnun Ágústar fyrir Prestsetrasafnið á Útskálum, en hann skrifaði um fleiri hundruð prestsetur fyrir safnið, allt frá Hvalfjarðarbotni til HellisheiðarTíunda bókin kemur út í byrjun árs 2011, en eiginkona sr. Ágústar er meðhöfundur að síðustu bókum hans.

Eftirlifandi eiginkona sr. Ágústar er Guðrún Lára Ásgeirsdóttir, fyrrverandi skólastjóri og bókasafnskennari, f. 14. nóv. 1940. Þau áttu tvö börn.

Útför sr. Ágústar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 27. ágúst kl. 13.

 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir