Fagráð um meðferð kynferðisbrota tók til starfa árið 1999. Fagráðið starfar samkvæmt starfsreglum kirkjuþings um meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar nr. 955/2009 áður 738/1998.
Frá upphafi hafa fimm mál borist til fagráðs.
Tvö mál sem vörðuðu unglinga voru tilkynnt strax til viðkomandi barnaverndaryfirvalda. Ákært var í öðru málinu en viðkomandi sýknaður af ákæru fyrir dómi. Eftir það var það tekið upp innan kirkjunnar og vísað til Úrskurðarnefndar. Viðkomandi, sem var prestur, var síðan færður úr starfi sóknarprests í framhaldi af því. Í hinu tilvikinu sem sömuleiðis var vísað til barnaverndaryfirvalda og varðar samskipti leiðtoga og unglinga í æskulýðsstarfi var viðkomandi vikið úr starfi á grundvelli siðareglna kirkjunnar og reglna æskulýðsstarfsins um samskipti leiðtoga við börn og unglinga.
Þrjú mál hafa borist frá fullorðnum einstaklingum. Þeim hefur verið veitt ráðgjöf og stuðningur en viðkomandi hafa kosið að setja mál sín hvorki fyrir dómstóla né senda þau til Úrskurðarnefndar kirkjunnar. Tvö málanna, sem voru yfir tuttugu ára gömul hvort um sig, vörðuðu óviðeigandi samkipti æskulýðleiðtoga við unglinga en það þriðja varðaði óvelkomna snertingu prests við kollega sinn.