Um verslunarmannahelgina var tónlistarmaðurinn góðkunni, Þorvaldur Halldórsson, á ferð í Múlaprófastsdæmi og leiddi tónlistarflutning í guðsþjónustum í þremur kirkjum með sínum einstaka hætti. Með honum í för var eiginkona hans, Margrét Scheving, sem leiddi sönginn ásamt honum.
