Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Undirbúa tillögur að rannsóknarnefnd

Forsætisnefnd kirkjuþings

Kirkjuráð ákvað á fundi sínum í dag, 25. ágúst 2010, að beina því til forsætisnefndar kirkjuþings að undirbúa fyrir kirkjuþing 2010 tillögur að rannsóknarnefnd til þess að rannsaka alla starfshætti og viðbrögð kirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni, biskupi, um kynferðisbrot.

Rannsóknarnefndin verði skipuð faglærðu fólki, óháðu stofnunum og embættum þjóðkirkjunnar. Lögð verði áhersla á að rannsóknarnefndin hraði störfum svo sem kostur er og skili kirkjuþingi niðurstöðum sínum sem jafnframt verði kynntar opinberlega.

Kirkjuþing hefur æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar og er að meiri hluta skipað leikmönnum undir forsæti Péturs Kr. Hafstein, fyrrverandi hæstaréttardómara. Forsætisnefnd skipa auk hans Margrét Björnsdóttir, bæjarfulltrúi og Ásbjörn Jónsson, lögmaður.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir