Þriðjudaginn 7. september eru 100 ár liðin frá fæðingu séra Árelíusar Níelssonar. Aldarafmælisins verður minnst með samkomu í safnaðarheimili Langholtskirkju. Samferðarfólk bregður upp myndum af prestinum, kennaranum, æskulýðsleiðtoganum og fjölskylduföðurnum. Sungnir verða sálmar og veraldleg ljóð eftir séra Árelíus bæði í einsöng og almennum söng.
Opnuð verður sýning á ýmsum munum og myndum sem tengjast séra Árelíusi og þá sérstaklega þjónustu hans í Langholtsprestakalli. Samkoman hefst kl. 20 og er öllum opin.
Séra Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur í Langholtskirkju, segir frá séra Árelíusi í stuttu viðtali við vefsjónvarp kirkjunnar.