Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Hamingja í morgunmessum

Hafnarfjarðarkirkja

„Morgunmessur hafa verið haldnar í Hafnarfjarðarkirkju í þrjú ár. Í haust ætlum við beina kastljósinu að hamingjunni og því hvernig við getum aukið hana með því að vera á jákvæðum nótum,“ segir sr. Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju.

Hann bætir við: „Í hugleiðingunni sem er flutt í messunni verður alltaf lögð áhersla á eitthvert eitt sem getum gert eða íhugað sem getur orðið til að auka gleði okkar, efla  okkur og styrkja og auka hamingju okkar í daglegu lífi. Í morgunverðinum á eftir er þetta svo endurtekið og messugestir hlæja mikið og spjalla um daglega lífið.“ 

Safnað fyrir mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar

Í morgunmessunum er vaninn að láta söfnunarbauk ganga fyrir altarisgöngu og geta þeir sem það vilja látið fé rakna, sem ætlað er til góðra verka. Vegna þess alvarlega ástands sem nú er uppi í samfélaginu hefur verið ákveðið að láta söfnunarfé haustsins renna til Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar. Mun söfnunin halda áfram fram yfir fyrsta miðvikudag í aðventu, en þá verður söfnunarféð afhent. Eru allir sem áhuga hafa hvattir til að leggja söfnuninni lið á miðvikudagsmorgnum nú í haust.

Morgunmessurnar í Hafnarfjarðarkirkju er kl. 8.15 alla miðvikudagsmorgna. Eftir messu er boðið upp á léttan morgunverð í safnaðarheimili kirkjunnar. Messuþjónustu annast prestar kirkjunnar, organisti og sönghópuirnn Lux aeterna. 

 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir