Hjálparstarf kirkjunnar sendir 2,5 milljónir króna til neyðarhjálpar í Pakistan. Þeim er miðlað í gegnum ACT Alliance sem Hjálparstarfið er aðili að.
Þrír ACT-aðilar eru að störfum í Pakistan og þekkja allar aðstæður. Samtals reikna þeir með að ná til um 270.000 manns:
Hjálparstarf norsku kirkjunnar (NCA) aðstoðar 31.500 manns með mat, lyf og önnur neyðargögn í þremur héruðum.
Church World Service vinnur með fjölda staðarsamtaka í sjö héruðum að því að veita 2.500 fjölskyldum bráðabirgða húsaskjól, 3.500 fjölskyldum grunn hjúkrun og heilsugæslu og 7.500 heimilum mat, áhöld og neyðargögn önnur en mat. Samkvæmt ACT eru konur og börn um 80% þeirra sem leita til þeirra eftir hjúkrun.
Diakonie Katastrophenhilfe (DKH) starfar með innlendum aðilum að því að reisa bráðabirgðahúsnæði og/eða hreinlætisaðstöðu fyrir samtals 72.000 manns í tveimur héruðunum. Flóðavatnið er óhreint og starfinu fylgir fræðsla um sjúkdóma sem berast með vatni.
Hægt er að styðja Hjálparstarf kirkjunnar / ACT-Alliance í Pakistan
með því að leggja inn á reikning 0334-26-886 / kt. 450670-0499.
Flóðin í Pakistan breiðast hratt út og eyðilegging talin ná yfir í það minnsta 40% af landinu. Meira en tvær milljónir manna hafa misst heimili sín og þúsundir manna látnar. Vannæring ser stórfellt vandamál þar sem talið er að 77 milljónir Pakistana hafi verið vannærðir fyrir flóðin. Mikil hætta er á að sjúkdómar breiðist út sem þeir hafa lítið mótstöðuafl gegn. Fjölda fólkst hefur ekki enn náðst til. ACT Alliance starfar í 130 löndum eftir helstu stöðlum í neyðar- og mannúðaraðstoð bæði SPHERE og siðareglum Alþjóða Rauða krossins, Rauða hálfmánans og annarra mannúðarsamtaka.
