Í tilefni alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna verður haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni á föstudaginn 10. september 2010, frá kl. 20:00 – 20:30, á vegum þjóðkirkjunnar, landlæknisembættisins, geðsviðs LSH, Geðhjálpar og Hugarafls. Kyrrðarstundin er til minningar um þá sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Að lokinni athöfn í kirkjunni verður gengið niður að Tjörn þar sem kertum verður fleytt til minningar um þá er fallið hafa frá fyrir eigin hendi.
Dagskrá kyrrðarstundarinnar verður á þessa leið:
• Elín Ebba Gunnarsdóttir rithöfundur og aðstandandi segir frá reynslu sinni.
• Bergþór Böðvarsson, fulltrúi notendaþjónustu geðsviðs LSH les upp.
• sr. Sigfinnur Þorleifsson flytur hugvekju.
• Tónlistaratriði:
o Hera Ólafsdóttir syngur.
o Ármann Ingvi Ármannsson syngur.
o Kári Þormar dómorganisti flytur tónlist.