Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Málstofa um tilkynningaskyldu og trúnaðarskyldu

Aðalbygging Háskóla Íslands - mynd: Árni Svanur Daníelsson

Í ljósi umræðu undangenginna daga, þar sem m.a. hafa vaknað upp spurningar um tilkynningaskyldu presta skv. ákvæði barnaverndarlaga og trúnaðarksyldu þeirra, sbr. lög um meðferð sakamála, boðar Rannsóknarstofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni í samstarfi við Lagastofnun Háskóla Íslands til opinnar málstofu í Lögbergi.

Frummælendur á málstofunni eru Hrefna Friðriksdóttir, lektor í sifja- og erfðarétti við lagadeild Háskóla Íslands. Heimir Örn Herbertsson, hæstaréttarlögmaður og sr. Gunnar Matthíasso, sjúkrahúsprestur og formaður fagráðs þjóðkirkjunnar um meðferð kynferðisbrota.

Að loknum framsöguerindum verður boðið upp á fyrirspurnir og umræður.

Fundarstjóri er Þórhildur Líndal, forstöðumaður Rannsóknarstofnunar Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni. Málstofan fer fram miðvikudaginn 1. september kl. 12.15-13.15 í stofu 101 í Lögbergi.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir