Rúmenska kvikmyndin Á morgun eftir leikstjórann Marian Crisan hlaut kvikmyndaverðlaun kirkjunnar sem voru veitt í fimmta sinn á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í gær. Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar eru veitt vandaðri kvikmynd sem fjallar um tilvistar-, siðferðis-, eða trúarlegar spurningar. Valið var milli tólf kvikmynda sem allar voru sýndar í flokkinum Vitranir á hátíðinni.
Í umsögn dómnefndar um myndina segir:
Á morgun er látlaus kvikmynd með kröftugum undirtóni. Þetta er mynd um vináttu tveggja manna, sem tala ekki sama tungumál, en skilja hvorn annan. Á morgun tekst á við knýjandi spurningar um landamærin milli þjóða og fólks, um stöðu innflytjenda og flóttamanna og um virðingu fyrir þeim sem eru okkur framandi. Hún tekur afdráttarlausa afstöðu gegn lögum og reglum sem þjóna sjálfum sér en ekki manneskjunni. Á morgun gefur skýrt og jákvætt svar við spurningunni sígildu: „Á ég að gæta bróður míns?“
Marian Crisan er fæddur í Rúmeníu árið 1976 og útskrifaðist úr kvikmyndagerð og sjónvarpsleikstjórn frá Leikhúss- og kvikmyndaakademíunni í Búkarest 2008. Fyrsta kvikmynd hans Megatron hlaut Gullpálmann í flokki stuttmynda í Cannes árið 2008. Á morgun er fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd.
Skírnin fékk sérstaka viðurkenningu
Dómnefndin veitti pólsku kvikmyndinni Skírnin einnig sérstaka viðurkenningu:
Þetta er vel gerð kvikmynd sem segir magnaða sögu af fórn og uppgjöri , vonleysi og von. Skírnin dregur upp trúverðuga mynd af tilgangsleysi ofbeldis. Hún speglar sekt hinna fullorðnu í sakleysi barnsins.
Marcin Wrona er fæddur í Tarnów í Póllandi árið 1973. Fyrsta stuttmyndin hans vann til verðlauna á Tribeca-hátíðinni í New York árið 2002. Hann hefur síðan unnið til fjölda verðlauna fyrir myndir sínar. Skírnin er önnur mynd hans í fullri lengd.
Í dómnefnd kirkjunnar voru Ármann Gunnarson, djákni, sr. Árni Svanur Daníelsson, verkefnisstjóri, og Jóhanna Magnúsdóttir, guðfræðingur.
