Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Hæfileikaríkir unglingar á æskulýðsmóti í Brúarási, Fljótsdalshéraði

Æskulýðsmót í Brúarási

Á mótinu var keppt í HÆNA, hæfileikakeppni NorðAusturlands og unnið í smiðjum þar sem þátttakendur gátu látið ljós sitt skína með skapandi tónlist, leiklist og listsköpun. Einnnig  var boðið upp skyndihjálparhóp, leikjahóp og fjölmiðlahóp, sem bjó til fréttablað og leituðu leiða til að ná eyrum og augum fjölmiðla,

Um 100 unglingar á aldrinum 13 til 16 ára og leiðtogar af Norður- og Austurlandi tóku þátt í mótinu sem haldið var í Brúarásskóla á Fljótsdalshéraði. Þema mótsins var “Með sama hugarfari og Kristur” og vísar til þess að við erum öll ólík, en eitt. Höfum margbreytilega hæfileika, sem við eigum að nýta hvert fyrir annað og samfélag okkar. Í þemastund á laugardeginum var fræðsla um mannréttindi, hver við erum, hvað við eigum sameiginlegt og mikilvægi þess að hugsa til þeirra sem njóta ekki mannréttinda.

Á laugardagskvöldinu fór fram hin árlega Hæfileikakeppni NorðAusturlands sem hefur þá skemmtilegu skammstöfun HÆNA. Keppnin fór að þessu sinni fram í Egilsstaðaskóla og keppt var í þremur flokkum. Í frjálsum flokki sigraði Matthías Þór Sverrisson frá Reyðarfirði, í flokki söngs og tónlistar sigraði hópur úr æskulýðsfélaginu Bíbí á Fljótsdalshéraði (hópflokkur) og Stefanía Tara Þrastardóttir úr æskulýðsfélaginu Glerbroti í Glerárkirkju (einstaklingsflokkur) og í flokki dans og líkamstjáningar sigraði danshópur frá æskulýðsfélagi Vopnafjarðarkirkju. Að keppninni lokinni var svo haldið stórt sundlaugarpartý í sundlauginni á Egilsstöðum.

Mótinu lauk með fjölmennri æskulýðsguðsþjónustu í Kirkjubæjarkirkju, elstu kirkju Fljótsdalshéraðs, á sunnudeginum. Þar tóku unglingarnir virkan þátt og sýndu hluta af afrakstri hópavinnu helgarinnar. Tónlistarhópur, undir stjórn Hjalta Jóns Sverrissonar tónlistarmanns, flutti gamlan sálm í nýstárlegri útgáfu með bæði hefðbundnum og óhefðbundnum hljóðfærum. Leikhópur, undir stjórn Laufeyjar Brár Jónsdóttur leikara, flutti frumsaminn leikþátt sem unninn var út frá þema æskulýðsmótsins. Unglingar leiddu bæn og lásu ritningarlestur, vígslubiskup Hólaumdæmis, sr. Jón A. Baldvinsson, predikaði í guðsþjónustunni en sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir sóknarprestur og sr. Hildur Eir Bolladóttir þjónuðu fyrir altari.

Það eru Æskulýðssamband kirkjunnar á Austurlandi og Æskulýðssamband Eyjafjarðarprófastdæmis sem standa fyrir mótshaldinu. Æskulýðssjóður styrkti fræðslu á samverunni en aðrir styrktaraðilar mótsins voru: Fljótsdalshérað, Flugfélag Íslands, Glerárkirkja, Múlaprófastsdæmi og Subway.

Stefán Már Gunnlaugsson og Þorgeir Arason

Nánar

Myndir frá æskulýðsmótinu

Deila fréttinni


Nýjar fréttir