Sumartónleikar í Skálholtsdómkirkju er meðal þriggja verkefna sem tilnefnd eru til Eyrarrósarinnar 2011. Eyrarrósin er veitt árlega fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni og verður afhent í sjöunda sinn á Bessastöðum 13. febrúar næstkomandi.
Markmið með Eyrarrósinni er að stuðla að fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Eyrarrósin felur í sér fjárstyrk að upphæð kr. 1.5 milljón og verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur til eignar.
Dorrit Moussaieff forsetafrú er verndari Eyrarrósarinnar og var viðurkenningin afhent í fyrsta sinn í ársbyrjun 2005 á Bessastöðum.
Auk Sumartónleika í Skálholti eru tilnefnd úr hópi umsækjenda 700IS Hreindýraland á Egilsstöðum og Þórbergssetur á Hala í Suðursveit.
Á myndinni með frétt þessari er Bachsveitin í Skálholti.
