Undanfarin ár hefur verið haldin uppskeruhátíð í Vopnafjarðarkirkju við lok starfsins að vori. Nú í ár var haldin sameiginleg Fjölskylduhátíð með öðrum félagasamtökum sem sinna barna- og unglingastarfi að frumkvæði kirkjunnar, þar sem boðið var upp á fjölbreytta dagskrá, sem hófst í kirkjunni með andlitsmálun, samverustund þar sem allir fengu blöðrur og glaðning frá kirkjunni.
Unglingar í æskulýðsfélaginu skreyttu safnaðarheimilið og kirkjuna með blöðrum og gluggana með lituðum blöðum. Í þremur gluggum var myndað orðið VON, sem var þema stundarinnar. Fyrir stundina var boðið upp kaffi, djús og kex og félagar í æskulýðsfélaginu buðu upp á andlitsmálun.
Í kirkjunni var sungið og Rebbi refur mætti í heimsókn með öllum vinum sínum úr Sunnudagaskólanum. Þá voru 10-12 ára börnin með helgileik um Bartímeus og unglingarnir voru með gjörning. Í lokin var sungið lokalagið og þá rigndi niður blöðrum um alla kirkjuna og öll börnin fengu glaðning frá kirkjunni. Ánægjuleg stund í góðu samfélagi í kirkjunni, þar sem börnin og unglingarnir í kirkjustarfinu lögðu svo mikið að mörkum.
Hátíðin í kirkjunni naut mikillar velvildar sem m.a. kom fram í fórnfúsri sjálfboðavinnu fjölmargra og fjárframlaga eftirtalinna fyrirtækja á Vopnafirði HB Grandi, Bílar og vélar og Landsbankinn. Fyrir allt þetta er þakkað.Eftir samveruna í kirkjunni var gengið fylktu liði upp á skólavöll, þar sem tóku við leikir, fótbolti, kassaklifur ofl. Einnig var teymt undir börnum og 5. fl. drengja og stúlkna í fótbolta keppti við lið Langnesinga. Síðan var kaffisala í Miklagarði á vegum Slysavarnarfélagið Sjöfn.
Að hátíðinni stóðu Hofsprestakall, Björgunarsveitin Vopni, Hestamannafélagið Glófaxi, Ungmennafélagið Einherji og Slysavarnarfélagið Sjöfn.






