„Hlutverk kirkjunnar í samfélagsþróuninni“ er yfirskrift erindis sem Sigridur Gudmarsdottir flytur á föstudaginn kemur.
Í örerindi sínu gengur Sigríður út frá því að Þjóðkirkjan hafi sem stofnun og fjöldahreyfing hlutverki að gegna í samfélagsþróuninni. Hún setur fram þrjár tilgátur um það hvað þurfi að gerast til þess að svo megi verða og lítur hin fyrsta að guðfræðilegum breytingum en hinar tvær síðarnefndu að uppbyggingu Þjóðkirkjunnar sem stofnunar.
Í fyrsta lagi telur hún að kallað sé eftir nýrri guðfræði sem láti sig mannréttindamál og velferðarmál skipta í ríkara mæli en nú er. Slíkar guðfræðiumhleypingar hafa að dómi Sigríðar smám saman verið að vaxa síðan um aldamót en kallað er eftir róttækari guðfræðilegri uppstokkun í ríkara mæli eftir hrun sem geti eflt Þjóðkirkjuna sem hreyfingu sem lifi í samstarfi og opinni umræðu við aðrar hreyfingar á landsvísu.
Í öðru lagi telur Sigríður að stofnunin Þjóðkirkjan verði að efla tilsjón með söfnuðum og þjónum Þjóðkirkjunnar, bæði hvað varðar aga og hvatningu til að stuðla að endurnýjun og gleði innan einstakra eininga fjöldahreyfingarinnar. Í þriðja lagi telur Sigríður að stofnunin verði að huga betur að sínum innri málum og vera fyrirmynd í stjórnsýslu og jafnréttismálum til þess að hún njóti trúverðugleika í samfélaginu.
Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur, ræðir þjóðkirkjuna og samfélagsþróunina í erindi föstudaginn 30 september. Súpu er hægt að kaupa frá 11:30 en 15 mínútna erindi hefst kl. 12:15. Allir velkomnir til fundar og umræðu.
Samantekt frá fyrri erindum
Hjalti Hugason: Kirkja vs. ríki
Árni Svanur Daníelsson: Samskiptabyltingin og samtalið um kirkjuna
Kristín Þórunn Tómasdóttir: Þjóðkirkjan er þátttökusamfélag
Á nöfinni – föstudagsfundir framtíðarhóps
Framtíðarhópur kirkjuþings mun efna til föstudagsfunda – undir yfirskriftinni Á nöfinni – um málefni kirkju og framtíðar í safnaðarheimili Neskirkju næstu föstudaga kl. 12:15-13. Eftir framsögur verða umræður. Allir velkomnir
Fyrirlestrar og fyrirlesarar eru:
9. september:
16. september:
23. september:
30. september:
7. október: Kirkja og þjóð í framtíð – Birna G. Konráðsdóttir, formaður sóknarnefndar í Stafholti
14. október: Kirkjan og framtíðin – dr. Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Neskirkju.
Verið velkomin í Neskirkju á föstudaginn kl. 12:15.
