Á hverju hausti er boðað til fræðslusamveru fyrir þau sem starfa í öldrunarþjónustu kirkjunnar. Að þessu sinni verður fjallað um lífsgleði efri áranna og hvernig mæta beri öldruðum í sálgæslu og umhyggju. Það fer vel á því að málþingið verður haldið mánudaginn 19. september strax á eftir degi kærleiksþjónustunnar.
Í eldri borgarastarfi kirkjunnar er rík hefð fyrir því að bæði sjálfboðaliðar og djáknar sinni þeirri kærleiksþjónustu sem þar fer fram bæði á samverum eldri borgara og sem heimsóknarvinir.
Frummælendur á málþinginu eru sr. Svanhildur Blöndal sem mun fjalla um sálgæslu og efri árin, Sesselja Magnúsdóttir og Stefán H. Stefánsson þeirra erindi nefnist Elligleðin, söngur fyrir heilabilaða og lokst mun Guðrún Ásmundsdóttir leikkona fjalla um lífsgleði efri áranna. Málþinginu stýrir Ásgeir Jóhannesson.
Það er Ellimálanefnd Þjóðkirkjunnar og Ellimálaráð Reykjavíkurprófastsdæma sem bjóða til þessa málþings sem haldið verður í Grensáskirkju mánudaginn 19. september kl. 13:00-16:30 og er öllum opið og aðgangur ókeypis.
