Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Búningar saumaðir fyrir landsmót – myndir

Fimmtán manna hópur frá Glerárkirkju er á leið á landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar. Þau lögðu af stað í morgun. Undirbúningur ferðarinnar hefur staðið í nokkurn tíma. Tvær stúlkur úr hópnum hafa æft stíft fyrir hæfileikakeppnina þar sem þær munu flytja söngatriði. Hópurinn hittist líka á dögunum til þess að sauma búninga, enda er búningaball á dagskránni á laugardagskvöldinu og verðlaunum heitið fyrir flottustu búningana.

Nokkrar mömmur og ein amma var fengin með í saumaskapinn og aldeilis glatt á hjalla eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir