Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Hjálpa unglingum í Japan

Gaman og alvara ræður í senn ríkjum hjá þeim rúmlega 500 unglingum sem koma saman á Selfossi um helgina á Landsmóti Æskulýðsfélaga þjóðkirkjunnar. Krakkarnir koma víðs vegar að af landinu, allt frá Reyðarfirði til Hvammstanga, Akureyri og Árbæ og taka allir þátt í fjölbreyttu unglingastarfi kirkjunnar um allt land. Hópur frá íslenska söfnuðinum í Noregi tekur líka þátt eins og undanfarin ár.

Mynd: Ármann Gunnarsson

Landsmótið í ár vekur athygli á aðstæðum unglinga í Japan og líðan þeirra eftir jarðskjálftann og flóðbylgjuna í ár. Íslenskir unglingar vilja leggja sitt af mörkum til að hjálpa jafnöldrum sínum sem búa við óöryggi og streitu á hamfarasvæðunum og tekur dagskrá landsmótsins mið af því. Áfallastreituröskun eftir erfiða atburði getur lýst sér í kvíða, svefnleysi og vanlíðan en besta leiðin til að vinna gegn slíkri röskun er að styðja börn í því að njóta sín við leik í streitulausu umhverfi, svo góðar minningar skapist sem ýti hinum erfiðu til hliðar.

Í því sambandi hefur landsmótið samstarf við Hjálparstarf kirkjunnar og japönsku góðgerðarsamtökin Gullhjörtun (Hearts of Gold) en þátttakendur hafa unnið við ýmisskonar fjáröflun heima í héraði til þess að undirbúa landsmótið. Prestur innflytjenda, sr. Toshiki Toma er sértakur ráðgjafi og tengiliður landsmótsins við Japan og japönsku samtökin.

Japansþema svífur einnig yfir vötnum í hópastarfi landsmótsins en m.a. verður boðið upp á sushi-gerð, björgunarsveitarhóp, hip-hop, japanskan metal, manga-hóp, hóp um japanska tísku, smíðahóp, spilahóp og bökunarhóp.

Fjölbreytt skemmtidagskrá verður einnig á landsmótinu, t.d. stjórnar Ingó veðurguð sundlaugapartý og Ari Eldjárn verður með uppistand. Mótinu lýkur með messu í Selfosskirkju með þátttöku unglinganna.

Dagskrá

Föstudagur

16:30 Brottför fyrir höfuðborgarsvæðið. Farið frá Digraneskirkju í Kópavogi.
16:00 – 18:00 Æskulýðsfélögin mæta á Selfoss
18:00 Mótssetning
19:00 Kvöldmatur í Iðu
19:15 Leiðtogafundur # 1
19:30 Leiðtogafundur # 2
20:00 Kvöldvaka / skráning í hópastarf
21:00 Sundlaugarpartý með Ingó / Nedó Sport
23:00 Kvöldhressing
23:30 Helgistund í Iðu
00:00 Svefnró

Laugardagur

08:15 Leiðtogafundir í skólum
08:30 Vakning
09:00 Morgunmatur
09:30 Félagahittingur
10:00 Fræðslustund í Iðu
12:00 Hádegismatur
13:00 Hópastarf. Sjá nánar.
17:00 Hópastarfi lýkur / Frjáls tími / Körfuboltamót í íþróttahúsi Vallaskóla.
19:00 Kvöldmatur
20:30 Kvöldvaka / Hæfileikakeppni. Ari Eldjárn kíkir í heimsókn.
21:45 – 00:15 Búningaball. Stuðlabandið og DJ Búni.
00:30 Helgistund
01:00 Ró

Sunnudagur

08:15 Leiðtogafundir í skólum
08:30 Vakning
09:00 – 10:30 Morgunmatur
11:00 Guðsþjónusta í Selfosskirkju.
12:30 Heimferð

Deila fréttinni


Nýjar fréttir