„Það er þjóðkirkjunni mikil og knýjandi nauðsyn að hlýða á rödd æskunnar og leiða hana til aukinna áhrifa í öllu kirkjulegu starfi,“ sagði Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, við setningu kirkjuþings unga fólksins í Grensáskirkju í morgun.
Þetta er fyrsta kirkjuþingið sem er haldið eftir að settar voru sérstakar starfsreglur um kirkjuþing unga fólksins árið 2009. Áður hafa verið haldin sambærileg kirkjuþing þrisvar sinnum, árin 2001 og 2005 í tengslum við kirkjudaga og árið 2008 á 50 ára afmæli kirkjuþings.
Mikilvægur lýðræðisvettvangur
Við setninguna sagði Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, að kirkjuþing væri vettvangur lýðræðis í þjóðkirkunni þar sem ólíkar skoðanir heyrast og fá rými. Hér fengi unga fólkið tækifæri til kynnast og taka þátt í þessum lýðræðisvettvangi, láta rödd sína heyrast og hafa áhrif. Og það væri mikilvægt að rödd þeirra heyrðist. Hann þakkaði þingfulltrúum, sem koma frá öllu landinu, fyrir að gefa kost á sér til setu á kirkjuþingi unga fólksins.
Rödd æskunnar er mikilvæg
Í setningarræðu sinni sagði Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, að kirkjuþing unga fólksins ætti „fyrst og fremst að vera vettvangur ungs fólks til að hafa áhrif á starfsemi þjóðkirkjunnar.“
Einn fulltrúi, kosinn af kirkjuþingi unga fólksins, mun sitja á hinu almenna kirkjuþingi sem hefst á morgun. Pétur sagðist binda miklar vonir við þátttöku þess fulltrúa og sagðist vænta „þess að koma hans þangað verði til að styrkja og efla vitund unga fólksins í kirkjunni og ekki síður okkar hinna um það hversu það er þjóðkirkjunni mikil og knýjandi nauðsyn að hlýða á rödd æskunnar og leiða hana til aukinna áhrifa í öllu kirkjulegu starfi.“
Að síðustu sagði Pétur: „Nú munar um liðveislu ykkar sem aldrei fyrr, ekki aðeins á þingum sem þessum heldur einnig og ekki síður í öllu starfi kirkjunnar og samfélagsins á heimaslóð.“
Jónína Sif Eyþórsdóttir var kosin forseti kirkjuþings unga fólksins. Varaforsetar eru Samúel Pétursson og Matthildur Ósk Óskarsdóttir.





