
Kirkjuþingi lauk í gær. Í ræðu sinni við lok þingsins ræddi Pétur Kr. Hafstein, þingforseti þingmálin að umræðuefni en alls voru 36 mál lögð fram.
„Flest eru þessi mál þýðingarmikil í starfi og stefnumörkun þjóðkirkjunnar. Þau eru öll borin fram af góðum huga og vilja til umbóta. Sum þeirra lúta að hinni veraldlegu ásýnd sem á hverjum tíma verður að svara kalli samtíma síns og þeim veruleika sem við lifum í. Önnur vísa fram á veg til þátttöku kirkjunnar í samfélaginu og þeirrar trúarlegu og siðferðilegu forystu sem kirkjunni ber að veita til að geta risið undir því heiti í vitund almennings að vera þjóðkirkja, kirkja sem er öllum opin og alltaf til reiðu og til þess búin að þjóna og líkna, boða fagnaðarerindi Krists bæði í orði og ekki síður í verki, smáu verki og stóru. Þannig kirkja hlýtur að eiga brýnt erindi við samtíma sinn og þar liggur ábyrgð kirkjuþings að treysta þær undirstöður.“
Aukakirkjuþing hefur verið haldið tvö ár í röð en slíkt var áður sjaldgæft. Taldi þingforseti að næði nýtt lagafrumvarp um Þjóðkirkjuna fram að ganga og fjárstjórnarvald færðist til kirkjuþings myndi reynast nauðsynlegt fyrir þing að koma saman tvisvar á ári í stað einu sinni.
Meðal helstu mála þingsins voru breyttar starfsreglur við kosningu biskupa, nýtt frumvarp til þjóðkirkjulaga og stefnur sem fyrir lágu á sviði vímuvarna, fatlaðra, kristniboðs, samskipta og fasteigna. Þá var þinginu kynnt starf úrbótanefndar kirkjunnar sem hefur það hlutverk að vinna úr skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar.
Leikmenn verða í meirihluta kjörmanna til biskupsembættis samkvæmt nýjum starfsreglum sem samþykktar voru á lokadegi þingsins. Samþykkt var að allir formenn sóknarnefnda og varaformenn sóknarnefnda í Kjalarnessprófastsdæmi og Reykjavíkurprófastsdæmum eystra og vestra.
Það reynir á starfsreglurnar strax á næsta ári þar sem útlit er fyrir að þá verði kosið til embættis biskups Íslands og til embættis vígslubiskups á Hólum.
Frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga lá einnig fyrir þinginu til umsagnar en gert er ráð fyrir að kirkjuþing 2012 greiði atkvæði um það. Þar eru umtalsverðar breytingar bæði á skipulagi kirkjustjórnar og til aukins sjálfstæðis þjóðkirkjunnar.
Skýrsla úrbótanefndar var kynnt þinginu og samþykkt að nefndin skyldi starfa áfram og kynna niðurstöður sínar og tillögur á kirkjuþingi 2012. Nefndin fékk einnig leyfi til að útvíkka verksvið sitt og horfa til annars konar ofbeldis svo sem eineltis.
Hugmynd áhugahóps fjárfesta um tilgátu-miðaldakirkju í Skálholti var kynnt kirkjuþingi. Samþykkt var ályktun þess efnis að kirkjuþing feli kirkjuráði að kanna, án skuldbindinga, alla þætti í fjármögnun, skipulagi og rekstri varðandi byggingu tilgátukirkju í Skálholti.
Á kirkjuþingi sitja 29 kjörnir fulltrúar, 12 prestar og 17 leikmenn. Þingið kemur að jafnaði saman árlega. Það er æðsta vald þjóðkirkjunnar innan lögmæltra marka.