Alþjóðleg samkirkjuleg bænavika fyrir einingu kristninnar er haldin árlega frá 18. – 25. janúar. Þessa viku sameinast kristið fólk um allan heim í bæn fyrir einingu. Bænavikan er undirbúin af kirkjum sem tilheyra samkirkjulegum samtökum er nefnast Alkirkjuráðið (World Council of Churches) og kaþólsku kirkjunni.
Kirkjum á ákveðnu svæði heims er falið að undirbúa efnið og árið 2012 kemur það frá Póllandi þar sem fólk frá ýmsum kirkjudeildum mótmælenda, kaþólskum kirkjum og rétttrúnaðar, unnu að undirbúningi. Þemað er „Sigur Krists umbreytir okkur!“ og kemur úr I. Korintubréfi, 15:51-58 og vísar í sögu Póllands og orðræðu sigurs og ósigurs.
Hér á landi verða samverur á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Reyðarfirði. Einnig verður samkirkjuleg útvarpsmessa send út frá Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 22. janúar og málþing um samkirkjumál verður haldið í sömu kirkju þriðjudaginn 24. janúar.
Upplýsingar um bænavikuna, dagskrá, biblíulestrar, bænir og efni til íhugunar er að finna á vef bænavikunnar, www.kirkjan.is/baenavika
Allir eru hjartanlega velkomnir á samverur bænavikunnar og er kristið fólk úr öllum trúfélögum hvatt til að mæta.
Hér á landi er bænavikan undirbúin af samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á höfuðborgarsvæðinu og samkirkjulegum hópum á Akureyri og víðar. Í samstarfsnefnd Kristinna trúfélaga eru Aðventkirkjan, Hjálpræðisherinn, Hvítasunnukirkjan, Íslenska Kristskirkjan, Kaþólska kirkjan, Óháði söfnuðurinn, Rússneska rétttrúnaðarkirkjan, Vegurinn og Þjóðkirkjan.


