Halvor Nordhaug, biskup í Bergen, prédikar í Hallgrímskirkju sunnudaginn 29.janúar. Prédikunin verður flutt á norsku en þýdd á íslensku.
Messan hefst klukkan 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari. Tónlistina annast félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju og organisti er Hörður Áskelsson.
Halvor Nordhaug er biskup í Bergen en var áður forstöðumaður stofnunar í kennimannlegum fræðum við Det Teologiske Menighetsfakultet í Ósló. Hann hefur ritað fjölda bóka og greina m.a. um tengsl ríkis og kirkju.