
Laugardaginn 28. janúar kl.. 15.00 verður opnuð sýning með handverki frú Magneu Þorkelsdóttur sem í áratugi vann ómælt starf í kirkjunni sem prestfrú, organisti, í félagsstarfi og sem biskupsfrú. Magnea Þorkelsdóttir var mikil hannyrðakona og urðu mörg listaverk til í höndum hennar. Hún saumaði fjölda þjóðbúninga bæði á sig og afkomendur sína. Á sýningunni verða valdir búningar úr safni fjölskyldunnar. Vegleg bók með sýnishorni af handavinnu frú Magneu er gefin út sem sýningarskrá.
Sýningin stendur til 28. ágúst. Frekari upplýsingar eru á vef Þjóðminjasafnsins.