Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Íslensk kirkjusaga fyrir almenning

Torfi K. Stefánsson Hjaltalín

Torfi K. Stefánsson Hjaltalín

Íslensk kirkjusaga eftir Torfa K. Stefánsson Hjaltalín er nýkomin út. Hann segir hugmyndina að bókinni hafa kviknað í Noregi. “Þegar ég starfaði sem prestur úti í Noregi (2009) sá ég kennslubækur í framhaldsskólum um norska kirkjusögu og fannst vanta svona bók á Íslandi. Upphaflega átti hún að vera fyrir grunn- og framhaldsskóla en það er ekki grundvöllur fyrir slíkt hér svo að bókin varð frekar stíluð upp á háskólanema og almenning.” Hún er þannig skrifuð með hliðsjón af þörfum hins almenna lesanda.
“Þetta er samantekt, ég reyni að draga heildarlínur og veita yfirsýn yfir kirkjusöguna. Hún er í tímaröð, en ég greini einnig hugmyndafræðileg tímabil.”
Í kynningu segir að þetta sé í fyrsta skipti sem íslensk kirkjusaga kemur í heild sinni út í einu bindi. Kristnisaga Íslands, sem gefin var út í tilefni Kristnitökuhátíðar, kom út í fjórum bindum.

Torfi var tvö ár að skrifa kirkjusöguna. Það vefst fyrir honum að svara því hvað var mest spennandi tímabil en heimildaöflun var mismikil eftir tímabilum.
 ”Ég eyddi talsverðum tíma í miðaldasöguna. Mesta rannsóknarvinnan var þó um 20. öldina því að þar var minnst til, til dæmis varðandi hugmyndafræði 20.
aldar. Ég fer til dæmis talsvert í ágreininginn milli gamal-lútersku guðfræðinnar og þeirrar frjálslyndu. Þarna er líka  mikið af upplýsingum um þessa stóru staði kirkjunnarm – kirkjumiðstöðvarnar – þessa merkilegu menningarsögu. Það nýtist líka fyrir þá menningartengdu ferðamennsku sem er vaxandi og þar sem kirkjurnar eiga sess. Mér finnst þetta menningarsögulega svið hafa verið vanrækt hjá okkur í kirkjunni.”

Í umsögn um bókina segir sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í
Skálholti: “Þó að tengja megi á vissan hátt saman þetta rit um íslenska kirkjusögu og Kirkjusögu Jóns Helgasonar, er þó mikill munur á. Framsetning Jóns Helgasonar er í miklum mun meira mæli persónusaga og biskupasaga, samkvæmt eldri venju um ritun kirkjusögu.
Hér er efnið að sönnu rakið í tímaröð en fyrst og fremst út frá hinni sögulegu framþróun hinnar almennu kirkju, trúarhugmyndum hennar og  heimsmyndarbreytingum, en ekki út frá persónum. Með því er hugmyndasagan í forgrunni og myndin af kirkjunni verður víðari og fjölbreytilegri eins og mannlífið sjálft ber best vitni um. Sérstaklega má benda á hvernig höfundur styður áherslur sínar og sögutúlkun með vísan til kveðskapar og ljóðmáls yfirleitt, sem lifði á vörum þjóðarinnar og mótaði hugsun hennar og viðhorf.”

Flateyjarútgáfan gefur bókina út. Hana prýða 70 myndir, nafnaskrá, skrá yfir staðarnöfn og heimildaskrá. Hún er 348 síður og í kilju.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir