Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Kynningarfundir í öllum landshlutum

Kjörstjórn til biskupskjörs: Karl M. Kristjánsson, Halla Bachmann og Gísli Baldur Garðarson formaður.Kirkjuráð fjallaði um væntanlegt kjör biskups Íslands á fundi sínum miðvikudaginn 18. janúar. Herra Karl Sigurbjörnsson hefur beðist lausnar frá embætti frá 30. júní 2012 að telja.

Kirkjuráð beinir þeim tilmælum til kjörstjórnar við biskupskjör að gengið verði til biskupskjörs. Stefnt verði að því að leggja fram kjörskrá er miðist við 1. febrúar 2012. Þess er óskað að kjörstjórn veiti hæfilegt svigrúm eftir að framboð eru komin fram til fundarhalda sbr. 2. lið þessarar ályktunar.

Kirkjuráð ályktaði eftirfarandi um framkvæmd biskupskjörs:

  1. Þau sem gefa kost á sér til biskupsembættis og þau sem vinna að kjöri þeirra gæti þess að halda í heiðri siðareglur embættismanna og starfsfólks þjóðkirkjunnar og gæti þess að orð þeirra og athafnir séu þjóðkirkjunni til sóma og málstað hennar til framdráttar.
  2. Til að auðvelda kynningu á frambjóðendum verði haldnir kynningarfundir í öllum landshlutum. Framkvæmdastjóri kirkjuráðs skipuleggi þessa fundi í samráði við héraðsnefndir, sem allir frambjóðendur og kosningabærir prestar og leikmenn prófastsdæmisins eru boðaðir til. Kostnaður við fundina greiðist úr kirkjumálasjóði. Ekki er greiddur ferðakostnaður fundarmanna og frambjóðenda.
  3. Kirkjuráð gangist fyrir og kosti útgáfu á sameiginlegu kynningarefni um frambjóðendur til biskupskjörs. Jafnframt verði kynningarefni um frambjóðendur gert aðgengilegt á sérstöku vefsvæði á vef kirkjunnar. Frambjóðendum og stuðningsmönnum þeirra sé gefinn kostur á að kynna málstað sinn í framangreindum miðlum. Fyllsta jafnræðis sé þar gætt um aðgengi.

Þá beinir kirkjuráð því til kjörstjórnar við biskupskjör að kjör vígslubiskups í Hólaumdæmi fari fram svo fljótt sem auðið er að loknu kjöri biskups Íslands.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir