Við upphaf nýs árs huga margir að heilsunni. Um áramót birtu fjölmiðlar í Noregi niðurstöður rannsóknar um tengsl messusóknar og blóðþrýstings.
Samkvæmt rannsókninni sem gerð var í norður Þrándheimi er fólk sem sækir messur með lægri blóðþrýsting og gildir það bæði um karla og konur.
“Við sáum að því oftar sem þátttakendur í rannsókninni fóru í kirkju því lægri var blóðþrýstingurinn, jafnvel þegar búið var að taka tillit til margra annarra skýringa,” segir Torgeir Sörensen, einn af rannsakendum.
Marmkið rannsóknarinnnar var að kanna hvort virkni í trúarlífi hefði áhrif á heilsu og voru valdar breyturnar kirkjursókn og blóðþrýstingur. Rannsóknin skýrir ekki orsakasamhengið en sýnir að þau sem eru virk í trúarlegu starfi eru heilbrigðari en þau sem ekki eru virk í trúarlegu starfi.
Þetta er fyrsta rannsókn af þessu tagi á Norðurlöndum en rannsóknir í Bandaríkjunum höfðu áður gefið vísbendingar um samhengi milli messusóknar og blóðþrýstings.
(heimild: www.forskning.no)