Málþing um samkirkjumál verður haldið í Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 24. janúar kl. 16.00.
Sr. María Ágústsdóttir, doktorsnemi, fjallar um samkirkjumál hérlendis og erlendis. Viðbrögð við erindi hennar veita Paul-Willian Marti frá Hjálpræðishernum, sr. Jakob Rolland, Kaþólsku kirkjunni og Vörður Leví Traustason, forstöðumaður, Hvítasunnukirkjunni.
Stjórnandi er Steinunn A. Björnsdóttir
Málþingið er hluti af alþjóðlegri samkirkjulegri bænaviku og er skipulagt af Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga. Því lýkur kl. 18.
