Hjúkrunarheimilið Sóltún á 10 ára starfsafmæli um þessar mundir. Af því tilefni var hátíðarguðsþjónusta 8. janúar. Íbúar, starfsfólk og gestir fjölmenntu og tóku þátt í messunni með biskupi Íslands, prófasti og héraðspresti Reykjavíkurprófastsdæmis vestra auk djákna heimilisins Jóni Jóhannssyni.
Allt frá upphafi hefur verið trúarleg þjónusta á heimilinu sem hefur falið í sér helgihald, sálgæslu, samfylgd með íbúum, aðstandendum og starfsfólki. Sóltún hefur þróað trúarlegu þjónustu sína og þegar heimilið opnaði voru þrír djáknar kallaðir til starfa, hver og einn í 50% stöðugildi. Hugmyndin var að einn djákni væri á hverri hæð með tvær deildir. Þannig var skipulagið í nokkur ár en nú er einn djákni þar í fullu starfi.
Anna Birna Jensdóttir forstjóri Sóltún tilfinningalegum og andlegum málum. Boðið hefur verið upp á sérstaka stuðningshópa fyrir aðstandendur. Prestþjónusta er sótt til sóknarprests Laugarnessóknar og boðið er upp á guðþjónustur reglulega í samkomusal heimilisins.