Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

“Ólýsanlega skemmtilegt og vel heppnað!”

Áhorfendur að Pétri og úlfinum

Áhorfendur að Pétri og úlfinum

Pétur og úlfurinn sprengdi öll aðsóknarmet í Hallgrímskirkju en sýningin var liður í Vetrarhátíð 2012. Forráðamenn telja að hátt í 1000 manns hafi hlustað á Val Frey Einarsson leikara segja söguna vinsælu og heyrt Mattias Wager túlka menn og dýr úr hópi sögupersóna á stóra Klais orgelið. Mattias Wager hafði umskrifað verkið fyrir orgel.

Opnunarkvöld Vetrahátíðar í Hallgrímskirkju sóttu um 500 manns, en um 2000 sóttu atburði þar samanlagt. Gestir voru að koma alveg fram undir miðnætti og þurfti á köflum að hleypa inn í hollum. Fjölmargir útlendingar litu inn enda margs að njóta sem ekki studdist við íslenskukunnáttu.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir