Frá og með deginum í dag munu þingmenn og ráðherrar lesa Passíusálmana í Grafavogskirkju, einn sálm á dag. Lesið er kl. 18 og miðað við að fólk geti komið við í kirkjunni á leið heim úr vinnu, hvílt hugann og beint sjónum að innihaldi föstunnar sem stendur fram að páskum. Svandís Svavarsdóttir les 1. sálminn. Sjá nánar á vef Grafarvogskirkju.
